Heim Félagið Fréttir Vefrit Greinar Tenglar Myndir/Myndbönd Reynslusögur Ganga í félagið Styrkja
 
 
18.09.2009 - Fundur: Börn og unglingar með höfuðáverka. Hvernig viljum við sjá framtíðina?

Í hverjum mánuði greinast um 50 börn og unglingar með höfuðáverka á Íslandi og ætla má að þrjú þeirra hljóti það alvarlega höfuðáverka að þau þarfnist stuðnings og endurhæfingar til lengri tíma. Það eru 30 til 40 börn á hverju ári.

Á Íslandi skortir úrræði fyrir þennan hóp. Þá er afar mikilvægt að foreldrar þeirra barna og unglinga sem hljóta væga höfuðáverka fái í hendur bækling á bráðaeild um eðli og mögulegar afleiðingar höfuðáverka og hvert skuli leita ef einkenni lagast ekki.

Þriðjudagskvöldið 22. september kl. 20 flytur Jónas G. Halldórsson taugasálfræðingur erindið: Börn og unglingar með höfuðáverka. Hvernig viljum við sjá framtíðina? Fundurinn verður haldinn að Hátúni 10B, jarðhæð (kaffistofa starfsmanna).

Þetta er fundur sem við megum ekki láta fram hjá okkur fara þar sem svona umræður leggja grunn að þeim baráttumálum sem við sem félagsmenn Hugarfars getum unnið áfram að.

Til baka