Heim Félagiđ Fréttir Vefrit Greinar Tenglar Myndir/Myndbönd Reynslusögur Ganga í félagiđ Styrkja
 
 
24.02.2010 - Fundurinn 23.02.2010

Dís og Tóti
Dís Gylfadóttir og Þórarinn Karlsson

Fundurinn var frábær. Fullur salur og mikill áhugi á sögum þeirra Dísar og Þórarins. Þau lögðu bæði mikla áherslu á hvað þau hafa gert til að takast á við skaðann og bæta sig. Hvernig þau hafa alltaf haldið áfram og gert hlutina aftur og aftur, þrátt fyrir mistök inn á milli, á endanum kemur svo margt til baka ef fólk gefst ekki upp.
Það kom líka fram að stuðningur aðstandenda skiptir mjög miklu máli. Að aðstandendur séu til staðar og hvetji viðkomandi áfram á jákvæðan hátt.


Dís sagði frá því hvernig það að fara á Innsæisnámskeið á Reykjalundi fyrir þremur og hálfu ári hafi breytt öllu, þar fékk hún fræðslu um hver skaðinn var og hún lærði líka að vinna með hann, takast á við að breyta því sem var að. Á sama tíma fór hún að taka lyfið Modiodal sem hjálpar henni við að halda sér vakandi yfir daginn.
Spurningunum rigndi yfir þau Dís, Þórarinn og Smára taugasálfræðing og áhuginn var mikill. Það kom fram í umræðunum að skömm og fordómar fylgja oft heilaskaða. Þessari hugsun þurfum við að breyta með því að fræða fólk um heilaskaða þannig að orðið heilaskaði hætti að vera eitthvað ógnvekjandi og hræðilegt og það að vera með heilaskaða er bara eitt af því sem getur komið fyrir í lífinu.


Málið er hvernig við vinnum með það. Ef við lítum á það sem verkefni en ekki vandamál breytist margt.
Þessi fundur sýnir okkur að félag eins og Hugarfar er nauðsynlegt og við vonumst eftir því að ungt fólk á aldrinum 20 – 40 ára haldi áfram að koma á fundi og jafnvel komi með hugmyndir af því hvernig þau vilja hafa fundina, hvernig fræðslu þau vilja eða hvort þau vilja kannski bara koma og spjalla og læra af hvort öðru og miðla reynslu sinni.

Guðmundur Magnússon formaður Öryrkjabandalagsins  og Lilja Þorgeirsdóttir framkvæmda­stjóri Öryrkjabandalagsins sátu fundinn. Guðmundur tók til máls í lok fundar og sagði frá því hvernig hann hafi upplifað fundinn. Guðmundur hafði sérstakt orð á góðri mætingu, hvað efni fundarins sé mikilvægt og að fleiri félög og málsstaðir gætu tekið Hugarfar til fyrirmyndar.

Næsti félags og fræðslufundur verður þann 23. mars:
Fulltrúar félagsþjónustunnar í Reykjavík, Aðalbjörg Traustadóttir og Olga Björg Jónsdóttir frá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis mæta í spjall og segja frá þjónustu þeirra og hvernig hún skarast við þjónustu ríkisins. Leitast verður við að svara spurningum. 

Til baka