Að lifa með heilaskaða, samskipti og þátttaka í samfélaginu. Dís Gylfadóttir og móðir hennar, hún Stella, segja frá reynslu sinni á þessu námskeiði.
Markmið: Að auka skilning á aðstæðum fólks með heilaskaða, möguleikum þess og hindrunum í daglegu lífi. Að auka gæði í þjónustu og samskiptum.
Lýsing: Á námskeiðinu verður fjallað um lífið eftir að líkamlegri endurhæfingu lýkur og daglegt líf tekur við. Fjallað er um lífsgæði og samskipti, upplýsingagjöf, sjálfsákvörðun og þörf fyrir aðstoð. Námskeiðið er unnið í samstarfi við fagráð um heilaskaða.
Leiðbeinendur: Anna Soffía Óskarsdóttir, sérkennslufræðingur hjá Fjölmennt, Klara Bragadóttir sviðsstjóri Svæðisskrifstofu Vesturlands, Sighvatur Blöndahl, forstöðumaður fræðslu- og tómstundamála fatlaðra Sveitarfélagsins Árborgar, Þórunn Halldórsdóttir talmeinafræðingur Reykjalundi, ung kona og aðstandandi hennar lýsa persónulegri reynslu sinni um að lifa með heilaskaða
Tími: 18. mars kl. 13 – 17:45 Lengd: 6 kennslustundir Verð: 10.000 kr.
Námskeiðið fer fram í Skeifunni 11b (sama hús og Mímir) Skráning hér |