Við í Hugarfari leytum enn á ný reynslu annarra, sendu okkur tölvupóst á stjorn@hugarfar.is með þinni reynslu af því að hafa hlotið skaða og hvernig gengur að takast á við eftirmálana.
Fjölskyldur sem verða fyrir því að einstaklingur hlýtur heilaskaða upplifa einnig breytingar og okkur hjá Hugarfar langar að heyra í þeim líka. Ekki hefur verið mikið talað um áunninn heilaskaða í samfélaginu og er fólk illa upplýst.
Sögur sem okkur berast verða ekki byrtar nema með leyfi höfunda, við erum fyrst og fremst að afla okkur sem flestra sjónarhorna á reynslu aðila. Mikið er til um reynslusögur á erlendum heimasíðum en við viljum vita hvernig þetta er hér heima og hvernig Íslendingar takast á við áunninn heilaskaða. |