Velferð fatlaðra Hvað ætlar þinn flokkur að gera?
Fundur ÖBÍ þriðjudaginn 25. maí kl. 16.00-19.00 á Hilton Reykjavík, sal A, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Oddvitar í framboðum til sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu svara spurningum um áherslur þeirra og forgangsröðun í málefnum fatlaðra. Fundarstjóri: Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Fundurinn er öllum opinn. Táknmálstúlkar verða á staðnum og tónmöskvakerfi. Nánari upplýsingar verða á heimasíðu ÖBÍ www.obi.is
Mætum öll! Ekkert um okkur án okkar!
 |