Til góðgerðafélaga sem hafa skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna ykkur að á morgun verður opnaður nýr vefur fyrir áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 á vefsvæðinu www.hlaupastyrkur.is.
Um er að ræða mun notendavænna umhverfi heldur en unnið hefur verið í undanfarin ár. Nýi vefurinn er nokkuð svipaður og reyndar byggður á sama grunni og vefur Mottumars sem sló heldur betur í gegn fyrr á þessu ári.
Á vefnum geta hlauparar sett inn myndir af sér og sagt frá því hvers vegna þeir hafa valið að hlaupa fyrir tiltekið góðgerðafélag. Auk þess að greiða áheit með kreditkorti eins og verið hefur undanfarin ár verður einnig hægt að heita á hlaupara með því að senda sms. Það er von okkar að nýr vefur setji aukinn kraft í áheitamálin og skili ykkur enn meiri tekjum í ykkar þörfu málefni.
Nú eins og áður þurfa hlauparar að skrá sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþonið á vefsíðunni marathon.is/reykjavikurmaraton. Þegar því er lokið geta þeir farið inná hlaupastyrkur.is og virkjað söfnun sína með því að velja „nýskráning“. Þau sem vilja heita á hlaupara fara beint inná hlaupastyrkur.is og velja þar einstaklinga eða boðhlaupslið sem þau vilja heita á. Senda þarf áheitanúmer viðkomandi sem texta í sms skilaboði eða ganga frá greiðslu með kreditkorti til að áheit skili sér.
Hægt er að heita á hlaupara fram að miðnætti mánudaginn 23. ágúst en hlaupið fer fram laugardaginn 21. ágúst.
Áheitavefurinn hlaupastyrkur.is verður formlega opnaður fimmtudaginn 15. júlí.
Hlaupakveðja Reykjavíkurmaraþon www.marathon.is |