Heim Félagiđ Fréttir Vefrit Greinar Tenglar Myndir/Myndbönd Reynslusögur Ganga í félagiđ Styrkja
 
 
Lög félagsins

1. gr
Nafn félagsins er Hugarfar. Félag fólks með áunninn heilaskaða, aðstandenda þess og áhugafólks um málefnið. Varnarþing félagsins er í Reykjavík.

2. gr
Tilgangur félagsins er að vinna að velferð og hagsmunamálum fólks með áunninn heilaskaða og aðstandendum þeirra.

3. gr
Markmið félagsins er:

  1. að stuðla að og styrkja samvinnu og samstarf fólks með áunninn heilaskaða, aðstandendum þeirra og fagfólks.
  2. að stofna stuðningshópa fyrir fólk með áunninn heilaskaða og aðstandendur þeirra.
  3. að vinna að því að fólk með áunninn heilaskaða og aðstandendur þeirra fái viðeigandi aðstoð og leiðbeiningar, frá opinberum aðilum,  félagslega sem og annan viðeigandi stuðning.
  4. að vinna að því að fólk með áunninn heilaskaða fái alla þá meðhöndlun og endurhæfingu sem þeir þurfa hver fyrir sig.
  5. vinna að upplýsingagjöf varðandi áunninn heilaskaða m.a. til fólks með heilaskaða, aðstandenda og   opinberra aðila.
  6. að vinna að því að á einum stað sé hægt að fá vitneskju um:
    1. áunninn heilaskaða.
    2. þær hindranir og fylgikvilla sem fylgja áunnum heilaskaða.
    3. meðferðar, endurhæfingarúrræði ásamt hjálpartækjum.
    4. stuðningsstofnanir.
  7. að vinna að úrræðum í húsnæðis- og atvinnumálum.
  8. að styðja og hvetja til rannsókna á heilaskaða og vera í góðri samvinnu við fagfólk sem kemur að málinu.
  9. að taka þátt í samstarfi á breiðum grundvelli um þessi málefni bæði innanlands sem erlendis.
  10. að vera í gagnvirku samstarfi við Fagráð um heilaskaða um ofangreind atriði.
  11. að ímynd félagsins endurspegli faglegt starf, virðingu og víðsýni.

4. gr
Félagið er frjálst öllum er vilja vinna að markmiðum félagsins. Árgjald félagsmanna er ákveðið á aðalfundi.

5. gr
Stjórn félagsins skal skipuð fimm manns. Kosið er sérstaklega til embættis formanns, gjaldkera og ritara. Fagráð um heilaskaða skipar einn fulltrúa í aðalstjórn og annan sem varamann. Stjórnin er skipuð til tveggja ára í senn. Formaður og 2 aðrir kosnir annað hvert ár en hitt árið eru 2 kosnir.

Varamenn skulu sitja stjórnarfundi. Varamaður Fagráðs situr fundi í fjarveru aðila sem er í aðalstjórn. Formaður er málsvari félagsins, boðar til stjórnarfunda og sinnir málefnum félagsins milli funda. Ritari ritar fundargerðir, heldur félagatal og varðveitir lög félagsins.
Gjaldkeri sér um fjármál félagsins í samvinnu við formann og varaformann.
Fulltrúi Fagráðs um heilaskaða tryggir samráð á milli stjórnar og Fagráðs um heilaskaða.
Reikningar skulu skoðaðir af löggiltum endurskoðanda.

6. gr
Aðalfundur er æðsta ákvörðunarvald í málefnum félagsins. Hann skal halda fyrir lok apríl ár hvert og til hans skal boðað með 2ja vikna fyrirvara á heimasíðu félagsins. Afl atkvæða ræður úrslitum mála nema annars sé getið í lögum þessum. Rétt til að greiða atkvæði á aðalfundi hafa skuldlausir félagsmenn.

Þessi mál skulu tekin til meðferðar á aðalfundi:
Kosning fundarstjóra
Skýrsla stjórnar
Reikningar félagsins
Lagabreytingar
Kosningar í stjórn
Árgjöld
Nefndakosningar
Önnur mál

Dagskrá vetrar skal ákveða að hausti og kynna á heimasíðu.

7. gr
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi. Breytingartillögur skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og skulu þær kynntar í fundarboði á heimasíðu félagsins. Nái tillaga um lagabreytingar fram þarf samþykki 2/3 hluta fundarmanna svo  hún taki gildi.

8. gr
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Endurskoðaðir ársreikningar skulu lagðir fyrir aðalfund ár hvert.

9. gr
Tekjum félagsins af félagsgjöldum, fjáröflunum og gjafafé skal varið til reksturs félagsins og til stuðnings aðila (innan félagsins) sem hyggjast sækja ráðstefnur, fundi eða námskeið um málefni er varða hag félagsins, hér á landi sem erlendis.

10. gr
Meirihluti stjórnar ritar félagið fullkominni ritun. Einnig getur stjórn félagsins veitt framkvæmdastjóra eða öðrum prókúruumboð. Allar meiriháttar ákvarðanir sem skuldbinda félagið fjárhagslega til framtíðar skulu lagðar undir félagsfund. Fjárveitingar er nema 150,000,- eða meira skulu ræddar og hljóta samþykki meirihluta stjórnar.

11. gr
Stjórnin ber ábyrgð á útgáfustarfsemi félagsins, þar með talið efni á heimasíðu.

12. gr
Ákvörðun um slit félagsins skal tekin á aðalfundi með 2/3 hluta atkvæða löggildra fundarmanna. Eignir þær er kunna að vera til staðar skulu geymdar á vaxtaaukabók (eða annari bók með góðri ávöxtun) í  banka í 5. ár. Eftir þann tíma má ráðstafa eignum félagins til sambærilegs félags.

Gildir frá 27. apríl 2010.