Aðalfundur Hugarfars 2015 verður haldinn í nýju húsnæði ÖBÍ að Sigtúni 42 Reykjavík í fundarherbergi 1. hæð þriðjudaginn 14. apríl 2015 kl. 20.
Dagskrá aðalfundar:
1. Fundur settur
2. Kosning fundarstjóra
3. Skýrsla stjórnar
4. Reikningar félagsins
5. Lagabreytingar
6. Kosningar í stjórn
7. Félagsgjöld
8. Önnur mál
Samkvæmt lögum félagsins skal kosið í þrjú embætti stjórnar:
Embætti formanns, ritara og annars varamanns.
Tekið verður við framboðum til stjórnar Hugarfars á hugarfar@hugarfar.is.
Vonum að sem flestir gefi sér tíma og mæti á aðalfundinn.
Stjórn Hugarfars
The Crash Reel í Bíó Paradís 24. og 25. mars.
Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir sýningu á heimildarmyndinni The Crash Reel í tengslum við Heilaviku HR. Myndin fjallar um snjóbrettakappann Kevin Pearce sem hlaut heilaskaða við iðkun íþróttar sinnar. Þetta er afar vönduð mynd sem unnið hefur til verðlauna.
Upplýsingar um sýningu myndarinnar er að finna á vef Bíó Paradísar (opnast í nýjum glugga) og einnig má nálgast upplýsingar um myndina á sérstökum vef myndarinnar (opnast í nýjum glugga).
Greinar í dagblöðum í vitundarvakningarviku
Í vitundarvakningarviku sem nú er senn á enda hafa birst ýmsar greinar í dagblöðum um heilaskaða og afleiðingar hans.
Þórunn Hanna Halldórsdóttir, yfirtalmeinafræðingur á Reykjalundi og meðlimur í Fagráði um heilaskaða, ritar grein undir yfirskriftinni "Heilaskaði og tjáskipti" sem birtist á visir.is 16. mars. Greinina má sjá með því að smella hér (opnast í nýjum glugga).
Anna Soffía Óskarsdóttir sem er í stjórnum Hugarfars og Fagráðs um heilaskaða ritar grein um afleiðingar heilaskaða og þörf fyrir Höfuðhús. Greinin birtist í Fréttablaðinu 17. mars og má lesa hana með því að smella hér (opnast í nýjum glugga).
Á vitundarvakningardaginn 18. mars birtist grein í Fréttablaðinu um Dís Gylfadóttur þar sem fjallað er um þann heilaskaða sem hún hlaut í bílslysi fyrir 12 árum. Dís náði síðar ótrúlegum bata og kláraði nám í guðfræði. Greinina má sjá með því að smella hér (opnast í nýjum glugga).
Jónas G. Halldórsson, sérfræðingur í klínískri taugasálfræði á Grensásdeild LSH, ritar grein undir yfirskriftinni "Fagráð um heilaskaða og Hugarfar" sem birtist í Morgunblaðinu 18. mars. Greinina má sjá á vef Hugarfars með þvi að smella hér.
Að lokum má svo benda á að í tímaritinu Vikunni frá 19. mars 2015 eru viðtöl við mæðgurnar Ólafíu Mjöll Hönnudóttur og Hönnu Maríu Ólafsdóttur sem sitja báðar í stjórn Hugarfars.
Vitundarvakningardagur um heilaskaða haldinn í dag
Í dag 18. mars er haldinn vitundarvakningardagur um heilaskaða. Í tilefni dagsins hafa margir grunnskólar á unglingastigi sýnt nemendum sínum forvarnarmyndbandið "Heilaskaði vegna ofbeldis" sem gert var að tilstuðlan Hugarfars, Reykjalundar og SÍBS. Myndbandið er aðengilegt á slóðinni www.hugarfar.is/heilaskadi-vegna-ofbeldis.
Í tilefni dagsins bauð Hugarfar í opið hús með kaffisopa og tónlistarflutningi að Sigtúni 42 og opnaði um leið skrifstofu á staðnum. Til að byrja með er ætlunin er að hafa þar opið í nokkra tíma í senn tvo daga í viku en opnunartími verður auglýstur síðar á heimasíðu og Facebook síðu Hugarfars.
Hugarfar þakkar öllum þeim sem nutu stundarinnar með okkur í Sigtúninu í dag.
Hefur áhyggjur af ofbeldi unglinga
Dís Gylfadóttir, guðfræðingur og stjórnarmaður í Hugarfari, ræddi við Kristínu Heiðu Kristinsdóttur blaðamann Morgunblaðsins um hópslagsmál og ofbeldi unglinga. Dís hlaut heilaskaða í bílslysi þegar hún var 19 ára.
Viðtalið má lesa með því að smella hér.
Vitundarvakningardagur um heilaskaða 18. mars
Hugarfar, félag fólks með ákominn heilaskaða, aðstandenda og áhugafólks um málefnið, mun standa fyrir vitundarvakningardegi um ákominn heilaskaða miðvikudaginn 18. mars 2015.
Þann sama dag munu amerísku heilaskaðasamtökin „Brain Injury Association of America“ verða með vitundarvakningardag.
Ákominn heilaskaði orsakast oftast af ytri áverka sem er tilkominn vegna ofbeldis, slysa og falla. Afleiðingarnar reynast oft dulin fötlun sem ekki sést utan á fólki en getur valdið því víðtækum vanda s.s. að flosna úr námi eða vinnu og missa í kjölfarið fótanna í lífinu. Hér á Íslandi verða árlega um 500 manns fyrir heilaskaða, af þeim þurfa um 50-80 á sérhæfðri endurhæfingu að halda ár hvert. Stór hluti þess hóps er ungt fólk.
Hugarfar hefur farið þess á leit við alla grunnskóla landsins að á vitundarvakningardegi sýni þeir nemendum í unglingadeildum skólanna forvarnarmyndbandið Heilaskaði af völdum ofbeldis, sem Hugarfar, Reykjalundur og SÍBS stóðu að. Myndbandið er aðgengilegt á slóðinni https://vimeo.com/41433751 .
Í tilefni af vitundarvakningardegi um heilaskaða 18. mars mun Hugarfar verða með opið hús að Sigtúni 42, Reykjavík, frá klukkan 17-19.
Fundur 10. febrúar um vitundarvakningardag
Vitundarvakningardagur um ákominn heilaskaða
Félagið Hugarfar boðar til fundar þriðjudaginn 10. febrúar kl. 20:00 í húsi SÍBS, Síðumúla 6, Reykjavík, 2. hæð.
Efni fundarins er undirbúningur og skipulag vitundarvakningardags um ákominn heilaskaða sem verður haldinn 18. mars 2015.
Allir sem vilja stuðla að vitundarvakningu og auknum skilningi á orsökum og afleiðingum heilaskaða eru hvattir til að mæta á fundinn.
Fundur 2. sept.
Næsti hittingur er þriðjuaginn 2 sept
Read moreHugarfar í Maraþoni
Hlauparar Hugarfars hlaupa samtals 144 km
Read moreHugarfar í Reykjavíkurmaraþoni
Hlaupahópur Hugarfars er á hlaupastyrk.is
Read more