Guðrún Harpa Heimisdóttir, formaður Hugarfars, fór yfir árið 2016 og sagði frá þeim stóru áföngum sem félagið náði á árinu. Stefán John, ritari og varaformaður félagsins, flutti uppbyggilegt erindi um ábyrgð okkar á eigin heilsu.
Veittar voru viðurkenningar fyrir góð störf og persónulegra sigra á árinu sem var að líða og tekið á móti styrkjum frá Soroptimistum í Kópavogi og mótorhjólaklúbbnum Sober riders auk þess sem hlaupurum Reykjavíkurmaraþonsins var formlega þakkað fyrir sitt framlag til félagsins.. Hugarfar þakkar öllum þeim sem lögðu félaginu lið á árinu 2016 og þá sérstaklega félagsmönnum sem tóku virkan þátt í starfi félagsins. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og samvinnu á nýju ári. Saman erum við sterkari.