Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands hvetur stjórnvöld til þess að tryggja það að þýðing á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði tekinn til endurskoðunar. Að því verki komi samtök fatlaðra, Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands og mannréttindalögfræðingar Háskóla Íslands.
Greinargerð:
Allt frá fyrstu drögum að þýðingu á Samningnum hefur komið hörð gagnrýni á þýðinguna. Spurningin er um skýrara orðalag og rétta hugtakanotkun.
Hvort heldur sem samningurinn verður fullgiltur, eins og til stóð eða lögfestur eins og nú er talað um er mikilvægt að notuð séu rétt hugtök og það sé skýrt hvað við er átt út frá þeirri nýju hugsun sem samningurinn gerir ráð fyrir.
Fundurinn vill auk þess vekja athygli á að enn er ekki farið að innleiða tilskipun Evrópusambandsins sem bannar mismunun á vinnumarkaði á grundvelli fötlunar meðal annars. Ísland er þannig orðið eina Evrópulandið þar sem vinnuveitendum leyfist að mismuna fólki á grundvelli fötlunar.
Sendist til allra ráðherra og þingmanna.