Sjá nýja grein undir greinar.
Viðtal við yfirlækni á Grensásdeild.
Your Custom Text Here
Sjá nýja grein undir greinar.
Viðtal við yfirlækni á Grensásdeild.
Þriðjudaginn 25. jan kl. 20,00 að Hátúni 10 mun...
Gunnar Eyjólfsson leikari kynna Qhi gong fyrir okkur.
Kaffi og spjall á eftir
Allir velkomnir,
Kveðja
Stjórnin
Stjórn Hugarfars hefur ákveðið að vera ekki með fund í desember en við sjáumst bara hressari í janúar.
Gleðilega hátið!
Fulltrúar Hugarfars verða mánudaginn 18. október kl.20:00 í Hlymsdölum félagsmiðstöð eldri borgara, Miðvangi 6 Egilsstöðum.
Vinir og vandamenn velkomnir og allir sem hafa áhuga á að kynna sér málefnið og þannig hjálpa okkar að opna umræðuna um heilaskaða og minnka fordóma í samfélaginu.
Ef þú ert að lesa þetta ertu á réttri leið, hvort sem þú ert einstaklingur með heilaskaða eða langar til að kynna þér málefnið.
Finnst þér þú stundum eins og Palli einn í heiminum. Margir einstaklingar með áunninn heilaskaða hafa upplifað það sem annað fólk skilur ekki.
Nú gefst tækifæri til að hitta og hlusta á tvo unga menn, þá Magnús Harra Sigurðsson og Kristinn Magnússon Michelsen segja sögur sínar, hvernig þeir hafa tekist á við heilaskaðann og fundið leiðir til að lifa lífinu til fulls. Tími verður fyrir spurningar og almennt spjall að lokinni sögustund.
Við verðum þriðjudaginn 12. október kl.20:00 í Hátúni 10 á kaffistofu starfsmanna 1. hæð.
Því fleiri því betra, vinir og vandamenn velkomnir, þó það væri ekki nema fyrir kaffið, við erum ekki ein í þessu.
Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands hvetur stjórnvöld til þess að tryggja það að þýðing á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði tekinn til endurskoðunar. Að því verki komi samtök fatlaðra, Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands og mannréttindalögfræðingar Háskóla Íslands.
Greinargerð:
Allt frá fyrstu drögum að þýðingu á Samningnum hefur komið hörð gagnrýni á þýðinguna. Spurningin er um skýrara orðalag og rétta hugtakanotkun.
Hvort heldur sem samningurinn verður fullgiltur, eins og til stóð eða lögfestur eins og nú er talað um er mikilvægt að notuð séu rétt hugtök og það sé skýrt hvað við er átt út frá þeirri nýju hugsun sem samningurinn gerir ráð fyrir.
Fundurinn vill auk þess vekja athygli á að enn er ekki farið að innleiða tilskipun Evrópusambandsins sem bannar mismunun á vinnumarkaði á grundvelli fötlunar meðal annars. Ísland er þannig orðið eina Evrópulandið þar sem vinnuveitendum leyfist að mismuna fólki á grundvelli fötlunar.
Sendist til allra ráðherra og þingmanna.