Framhalds aðalfundur Hugarfars 28. sept. 2011

Framhalds aðalfundur Hugarfars verður haldinn 28. sept. n.k. kl.20,00 að Hátúni 10, Reykjavík.

Það sem verður tekið fyrir er kosning formanns og lagabreytingar.

Stjórn Hugarfars langar að sjá sem flesta og taka vel á móti nýjum formanni.

Hjálagt eru tillögur að lagabreytingum - endilega lesið þær yfir og gerið athugasemdir finnist ykkur þess þurfa.

 

1. gr

Nafn félagsins er Hugarfar. Félag fólks með áunninn heilaskaða, aðstandenda og áhugafólks um málefnið. Varnarþing félagsins er í Reykjavík.

 

2. gr

Markmið félagsins er:

 

1.   að vinna að því að halda utan um upplýsingar og miðla þeim.

2.   að taka þátt í samstarfi á breiðum grundvelli um áunninn heilaskaða hér á landi sem erlendis.

3.   að vera í samstarfi við Fagráð um heilaskaða um ofangreind atriði.

           

3. gr

Félagið er opið öllum er vilja vinna að markmiðum þess. Árgjald félagsmanna er ákveðið á aðalfundi.

 

4. gr

Stjórn félagsins skal skipuð þremur einstaklingum ásamt fulltrúa frá Fagráði. Varamenn stjórnar eru 2 ásamt varamanni Fagráðs. Kosið er sérstaklega í formannsembættið. Stjórnin er skipuð til tveggja ára í senn. Formaður og einn stjórnarmaður eru kosnir annað hvert ár en hitt árið er einn stjórnarmaður kosinn. Árlega skal kjósa einn varamann í stjórn til tveggja ára. Stjórnin skiptir með sér verkum þannig:

 

Formaður er málsvari félagsins, boðar til stjórnarfunda og sinnir málefnum félagsins á milli funda. Ritari ritar fundargerðir, bréf og varðveitir lög félagsins.

Gjaldkeri sér um fjármál félagsins og heldur utan um félagatal.  

Fagráð um heilaskaða skipar einn fulltrúa í aðalstjórn og annan sem varamann.

Varamenn skulu sitja stjórnarfundi. Varamaður Fagráðs situr fundi í fjarveru aðila sem er í aðalstjórn.

Fulltrúi Fagráðs um heilaskaða tryggir samráð á milli stjórnar og Fagráðs um heilaskaða.

Reikningar skulu skoðaðir af löggiltum endurskoðanda.

 

5. gr

Aðalfundur er æðsta ákvörðunarvald í málefnum félagsins. Hann skal halda fyrir lok apríl ár hvert og til hans boðað með tveggja vikna fyrirvara á heimasíðu félagsins. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála nema annars sé getið í lögum þessum. Rétt til að greiða atkvæði á aðalfundi hafa skuldlausir félagsmenn.

 

Þessi mál skulu tekin til meðferðar á aðalfundi:

 

Kosning fundarstjóra

Skýrsla stjórnar

Reikningar félagsins

Lagabreytingar

Kosningar í stjórn

Félagsgjöld

Önnur mál

 

 

6. gr

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi. Breytingartillögur skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og skulu þær kynntar í fundarboði á heimasíðu félagsins. Nái tillaga um lagabreytingar fram þarf samþykki 2/3 hluta fundarmanna svo  hún taki gildi.

 

7. gr

Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Endurskoðaðir ársreikningar skulu lagðir fyrir aðalfund ár hvert.

 

8. gr

Tekjum félagsins af félgsgjöldum, fjáröflun og gjafafé skal varið til reksturs félagsins og til stuðnings aðila (innan félagsins) sem hyggjast sækja ráðstefnur, fundi eða námskeið um málefni er varða hag félgsins/félagsmanna, hér á landi sem erlendis.

 

9. gr

Meirihluti stjórnar ritar félagið fullkominni ritun. Stjórn félagsins getur veitt formanni eða öðrum prókúruumboð. Allar meiriháttar ákvarðanir sem skuldbinda félagið fjárhagslega til framtíðar skulu lagðar undir félagsfund.  Fjárveitingar er nema kr. 150,000,- eða meira skulu ræddar og hljóta samþykki meirihluta stjórnar.

 

10. gr

Stjórnin ber ábyrgð á útgáfustarfsemi félagsins, þar með talið efni á heimasíðu.

 

11. gr

Ákvörðun um slit félagsins skal tekin á aðalfundi með 2/3 hluta atkvæða atkvæðisbærra fundarmanna. Eignir þær er kunna að vera til staðar skulu geymdar á vaxtaaukabók (eða annarri bók með góðri ávöxtun) í  banka í 5 ár. Eftir þann tíma má ráðstafa eignum félagins til sambærilegs félags og ákvörðun um það tekin af þeirri stjórn sem síðast sat.

Ábending frá félagsmanni

Hún Kolbrún benti okkur á góða bók um höfuðáverka. Bókin heitir: Head Injury:  A practical guide. Höf. er: Trevor Powell.

Sagði Kolbrún að þessi bók fengist á Amazon og hafi bókin reynst henni og hennar fjölskyldu afskaplega vel.

Einnig mætti benda á aðra bók sem fæst á Amazon: “Head Injury” The facts. A guide for families and care-givers.

Ljósmyndasamkeppni Öryrkjabandalags Íslands

Ritnefnd Öryrkjabandalags Íslands vill vekja athygli á því að ÖBÍ hefur sett í gang ljósmyndasamkeppni meðal landsmanna og munu þeir sem senda inn bestu myndirnar fá vegleg verðlaun. Markmiðið er að fá myndir sem ÖBÍ getur notað á heimasíðu bandalagsins, í Tímarit ÖBÍ, ársskýrslu og öðru efni útgefnu af ÖBÍ. 

Athygli er vakin á því að ÖBÍ áskilur sér rétt til að nota þær myndir sem berast í keppnina í gagnabanka sínum. Hygmyndin er sú að styrkja megi það myndasafn sem bandalagið á nú þegar til að nota við útgáfu efnis. Myndasafnið er eingöngu ætlað Öryrkjabandalagi Íslands og verður því ekki aðgengilegt öðrum.

 

Áhugasamir sendi mynd/myndir ásamt upplýsingum um nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer ljósmyndara til ritnefndar Tímarits Öryrkjabandalags Íslands, Hátúni 10, 105 Reykjavík, eða á netfangið: ritnefnd@obi.is

 

Skilafrestur er til og með 1. ágúst 2011

Með góðri kveðju,

Margrét Rósa Jochumsdóttir, ritstjóri ÖBÍ

Öryrkjabandalag Íslands 50. ára 2011

Núna í maí hélt ÖBÍ upp á 50. ára afmæli sitt með veislu á Hótel Nordica. Margt var um manninn og vel að hátíðinni staðið.

Formaður fór f.h. Hugarfars í veisluna. Hljómsveit lék fyrir veislugesti í upphafi, meðan fólkið streymdi að.

Stuttu seinna var farið í annan sal á Hótel Nordica og var veislunni framhaldið þar. Ræður og gamanmál ásamt því að mynd um 50 ára sögu ÖBÍ var sýnd. Það er ekki auðvelt að koma 50. árum fyrir á klukkutíma mynd en útkoman var góð. Til stendur að sýna myndina í sjónvarpi vonandi sem fyrst. 

Gleðilegt sumar

Stjórn Hugarfars hefur ákveðið að fella niður maí fundinn og er því starfsemin komin í sumarfílinginn. 

Vona að allir okkar félagsmenn og aðrir landsmenn hafði það virkilega gott í sumar. 

Vil samt vekja athygli á því að Hugarfar vantar formann. Langar þig ekki til að vera formaður?

Hafið samband á hugarfar@hugarfar.is

Ráðstefna í Austurríki 2011

Dagana 23–26.feb. 2011 var haldin ráðstefna í Austurríki sem Evrópusamtök fólks með heilaskaða (BIF) stóð fyrir. Ráðstefnan var vel sótt bæði af fólki með heilaskaða, aðstandendum og líka fagfólki.

Vinnufundir voru m.a. á ráðstefnunni og eru meðfylgjandi niðurstöður eins slíks vinnuhóps er varðar endurhæfingu. 

Niðurstaða hugmyndasöfnunar:

  • Reglulegir fundir (skiptast á reynslu, safna nýjum hugmyndum, hlusta á fyrirlestur um viðeigandi efni ...)
  • Gönguferðir
  • Námshringir ( hópar sem er stýrt, óformleg menntun, undirbúnir fundi um sérstök efni / starfsemi)
  • Vikuleg viðfangsefni (samtal í erlendum tungumálum, keila, billiard, minigolf, dans, tónlist, leikir, umræður ...)
  • Dagleg samverustund í endurhæfingarstöð
  • Upplýsingaöflun / svo sem sjálfshjálparteymi á vefsíðum læknasamfélagsins
  • Eigið fréttablað
  • Fjáröflun m.þ.a. halda basara eða sölubássa á markaðstorgum, tónleika eða aðrar góðgerðarsamkomur

 

Formaður fór á fund BIF í október sl. og heyrði þar og sá að önnur lönd í Evrópu eru að berjast við sömu hindranir en eru lengra komin er varðar endurhæfingu fólks með heilaskaða.

 Eitt fremsta baráttumál Hugarfars er að hér verði hægt að fá endurhæfingu við hæfi fyrir hvern og einn einstakling.

Farsímar/snjallsímar/iPad stuðningstæki í daglegu lífi

Fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur (FFA) í samvinnu við TMF Tölvumiðstöð stendur fyrir kynningu mánudaginn 28. mars kl. 20:00 nk. að Háaleitisbraut 13, 4. hæð 

 

Sigrún Jóhannsdóttir og Hrönn Birgisdóttir frá TMF kynna hvernig venjulegir farsímar, snjallsímar og iPad geta verið stuðningstæki í daglegu lífi. 

 

Farsímann má m.a. nota sem minnis- og skipulagstæki. Hægt er að nota myndir, texta og tal. Í iPad er m.a. hægt að búa til félagshæfnisögur, tjáskiptatöflur o.fl. 

 

Kynningin er ókeypis og öllum opin 

FFA Fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur

TMF Tölvumiðstöð 

Tækni – Miðlun - Færni